Einkasýning Söru Sif í Artak105 Gallery, Skipholti 9. 105 Reykjavík, opnar
Fimmtudaginn 25. ágúst kl 17-20.
Léttar veitingar verða í boði!
Opnunartímar:
Föstudaginn 26. ágúst kl 13 – 17.
Laugardaginn 27. ágúst kl 13 – 17.
Sunnudaginn 28. ágúst kl 13 – 17.
Mánudaginn 29. ágúst kl 13 – 17.
Á þessari sýningu verða til sýnis verk sem spanna feril Söru frá því hún útskrifaðist, bæði
gömul og ný. Flest verkin eru til sölu en þó eru nokkur sem koma úr einkaeigu velunnara eða
eru þegar seld.
Um listamanninn:
Sara Sif Kristinsdóttir (f. 1992) býr og starfar á Akureyri. Hún útskrifaðist af Fagurlistadeild
Myndlistaskólans á Akureyri árið 2019 en áður hafði hún numið myndlist við
Fjölbrautarskóla Suðurlands, Fjölbrautarskólann í Breiðholti, Myndlistarskóla Reykjavíkur og
Den Klassiske Tegneskole í Kaupmannahöfn, Danmörku. Þetta er fyrsta sýning Söru utan
Akureyrar en hún hefur haldið sýningar í sal Kaktusar og í Mjólkurbúðinni, sýningarsal
Myndlistarfélags Akureyrar reglulega síðan 2019.
Listsköpun Söru er fjölbreytt og spannar alla miðla eins og mun sjást á þessari yfirlitssýningu.
Olíumálun á þó hjarta hennar en teikning var hennar fyrsta ást. Skúlptúrar og vatnslitir koma
líka mikið við sögu. Náttúran og gróteska eru hennar aðal viðfangsefni þar sem hún tekur og
bjagar íslenska náttúru, furðulegar plöntur og sveppi, allt blandað saman við myrkrið og
dauðann.
Instagram: sara.sif
Facebook: Sara Sif – Artist